top of page

Ef þú greinist með krabbamein í blöðruhálskirtli gengur þú aldrei einn

Krabbameinsfélagið Framför, félag karlmanna með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandenda var stofnað þann 12. febrúar 2007. Tilgangur félagsins er að styðja karlmenn sem hafa greinst með krabbamein í blöðruhálskirtli og maka þeirra og aðstandendur. Krabbameinsfélagið Framför starfar á landsvísu sem sjálfstætt stuðnings- og áhugamannafélag og er aðildarfélag að Krabbameinsfélagi Íslands og í samstarfi við Ljósið endurhæfingarmiðstöð (einn stjórnarmaður kemur frá þeim).

Megin verkefni félagsins eru:

  • Að ljá körlum með krabbamein í blöðruhálskirtli rödd í almennri umræðu og tala þeirra máli við yfirvöld.

  • Að gefa út fræðsluefni um krabbamein í blöðruhálskirtli og fylgikvilla þess, bæði fyrir sjúklingana og fyrir aðstandendur.

  • Starfrækja batasamfélag sem skili betri lífsgæðum hjá körlum sem greinast með krabbamein í blöðruhálskirtli og þeirra aðstandendum.

  • Halda uppi félagsstarfi og fræðslu um krabbamein í blöðruhálskirtli, við greiningu, í virku eftirliti, í meðferðum og eftir meðferðir.

  • Stuðla að forvörnum og efla snemmgreiningu á krabbameini í blöðruhálskirtli.

Nýjustu fréttir

Hvað er krabbamein í blöðruhálskirtli? - myndband

Að upplifa krabbamein
í blöðruhálskirtli!

Sýnishorn úr upplýsingaveitunni hjá Framför

Stuðningshópar

Makahópur

Tilgangur

Heilsuhópur

Markþjálfun

Stuðningsnetið

Gerast styrktaraðili

Góðir hálsar

Frískir menn

bottom of page