top of page

VARSTU AÐ KLÁRA MEÐFERÐ?- spurningar og svör

Þessar upplýsingar hér að neðan eru ætlaðar körlum sem hafa verið greindir með krabbamein í blöðruhálskirtli og gengið í gegnum meðferðina. Þetta er einnig ætlað körlum sem eru með krabbamein í blöðruhálskirtli, en eiga eftir að fá meðferð. Mökum, ástvinum, fjölskyldu og vinum gæti einnig fundist margt gagnlegt í þessum bæklingi.

</s> </s> </s> </s> </s> </s> </s> </s> </s> </s> </s> </s>

Við höfum tekið saman upplýsingar um líkamleg og tilfinningaleg áhrif krabbameins í blöðruhálskirtli og leiðir til að stjórna þeim. Við ræðum einnig hagnýt mál eins og vinnu og peninga.

</s> </s> </s> </s> </s> </s> </s> </s> </s> </s> </s> </s>

Hér er að finna almennar leiðarbeiningar og reynslu hvers og eins er ólík. Þér gæti fundist einhverjir hlutar af þessum fleiri gagnlegri og öðrum. Ef þú vilt fá nánari upplýsingar skaltu ræða við þinn lækni eða hjúkrunarfræðing. Þú getur einnig talað við ráðgjafa okkar.

Varstu að fá greiningu?

Varstu að klára meðferð?

Stuðningsumhverfi
  • Sálfræðiþjónusta
    Framför býður upp á sálfræðiþjónustu í samstarfi við Krabbameinsfélagið. Það getur reynt mikið á að fá greiningu um krabbamein og eins að taka þátt í meðferð við krabbameini. Oft getur einnig verið erfitt að stilla sig af eftir meðferð við krabbameini í blöðruhálskirtli. Við þessar aðstæður getur komið upp kvíði og þunglyndi sem þarf að taka á með faglegum hætti. Sálfræðingar hjá Krabbameinsfélaginu eru með mikla reynslu í að taka á þessum málum og hægt er að panta endurgjaldslausan tíma fyrir sálfræðiaðstoð.
  • Almennar upplýsingar við greiningu
    Það getur verið erfitt að fá fréttir um að hafa greinst með krabbamein. Okkar aðilar fara yfir þér með stöðuna og upplýsa þig um hvað þú þarft að vita: 1. Hann sýnir þér upplýsingar um þær meðferðir sem standa til boða. 2. Hann bendir þér á upplýsingar um mögulega aukaverkunum sem hver leið hefur. 3. Hann fer yfir tölfræði um fjölda þeirra sem greinast, fara í meðferð og lifunartíma. 4. Hann fer yfir þá þjónustu og stuðning sem Framför og samstarfstarfs aðilar bjóða upp á. 5. Hann kynnir fræðsluumhverfið hjá Framför.
  • Markþjálfun
    Markþjálfun hjá Framför er samstarfsferli þar sem faglegur aðili aðstoðar þig við að greina þína stöðuna og setja þér markmið um framtíðina. Margir eiga erfitt með að taka fréttum um greiningu, eiga við hugsanir í meðferð eða að móta lífsleiðina eftir meðferð. Hvert verkefni á þessu ferðalagi hefur sína áskorun og markþjálfi aðstoðar þig við að taka á þessu. Viðfangsefni markþjálfara er að losa um þetta og til þess notar hann ákveðna tækni og sérhæfða aðferðarfræði. Að vinna með með markþjálfa er eins og að vinna með íþróttaþjálfara. Hann aðstoðar þig við að greina þá þætti sem þú þarf í þau verkefni sem þú ert að eiga við, vinnur með þér aðgerðaráætlun, hvetur þig á leiðinni og hjálpar þér að til að höndla málin betur. Markþjálfun er án endurgjalds. Fjöldi tíma er samkvæmt samkomulagi hverju sinni. Karlmenn sem eru greindir geta tekið maka með sér í markþjálfun. Markþjálfun hjá Framför er endurgjaldslaus fyrir félags- og styrktaraðila. Öll samtöl eru trúnaðarmál.
  • Jafningastuðningur
    Jafningjastuðningur er fyrir þá sem hafa fengið greiningu, eru í meðferð eða hafa lokið meðferð. Þeir stuðningsfulltrúar sem standa þér til boða eru á svipuðum aldri og hafa áður gengið í gegnum og upplifað sömu aðstæður. Þarna getur þú rætt við reynslubolta um það sem hann hefur upplifað og bætt þannig við þína þekkingu um það hvernig best er að takast á við málin hverju sinni. Þessir stuðningsfulltrúar hafa allir sérhæfða þjálfun til að taka svona samtöl og gera þetta í sjálfboðaliðsstarfi. Öll samtöl eru trúnaðarmál.
hopar_godirhalsar.jpg

GÓÐIR HÁLSAR

Stuðningur eftir greiningu

Góðir hálsar er stuðningshópur fyrir karla sem hafa greinst með krabbamein í blöðru-hálskirtli. Mánaðarlegir fundir eru í hverjum mánuði í húsnæði Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8.

hopar_makahopur.jpg

AÐSTANDENDUR

Samvera og miðlun

Makar aðila með greiningu geta átt erfiðara en sá greindi að takast á við verkefnið. Makahópurinn gefur þessum aðilum tækifæri til að heyra hvernig eigi að takast á við þetta (fer af stað haustið 2020).

hopar_friskirmenn2.jpg

FRÍSKIR MENN
Byggja upp lífið

Frískir menn er stuðningshópur fyrir þá einstaklinga sem greinst hafa með blöðru-hálskirtilskrabbamein og hafa möguleika á virku eftirliti og vilja fara þessa leið eftir greiningu á sínu krabbameini.

hopar_markthjalfun.jpg

AÐ FINNA TILGANGINN

Finna leið til jafnvægis

Að fá greiningu á krabbameini getur sett lífið úr skorðum. Framför er með stuðning, upplýsingagjöf og námskeið til að endur-stilla viðhorf til lífsins og að finna endur-nýjaðan tilgang (fer af stað haustið 2020).

hopar_friskirmenn.jpg

STUÐNINGSNETIÐ
Heyra í aðila með sömu upplifun

Ráðgjafaþjónusta Krabbameinsfélagsins er með jafningjastuðning fyrir krabbameins-greinda og aðstandendur. Stuðningsaðilar hafa greinst hafa með  krabbamein eða eru aðstandendur. Smella hér.

personal-1264693_960_720.jpg

HEILSA
Matarræði, hreyfing og félagsmál

Heilsuhópurinn verður fyrir þá sem vilja taka þátt í léttum göngum og fá reglulega fræðslu um mataræði, læra jákvæða hugsun, taka þátt í umræðu og einhverju skemmtilegu (fer af stað haustið 2020). 

bottom of page